Nótnasafn
Nótnasafn
SÍL hefur verið duglegt við ýmiskonar nótnaútgáfu. Mikið af útgáfunni hefur miðað við útsetningar sem minni hópar geta spilað. Dæmi um það eru Leikandi Létt bækurnar sem eru miðaðar við að brass kvintett geti spilað en hljómi einnig vel með heilli lúðrasveit. En SÍL hefur einnig komið að stærri útsetningum, þá oft í tengslum við landsmót eða álíka verkefni.
SÍL er að koma nótnasafninu á stafrænt form að gera aðgengilegt fyrir meðlimi. Það er enn í vinnslu og því ekki allt aðgengilegt þar inni.
Aðgangur er takmarkaður við meðlimi SÍL. Til að fá aðgang þarf að senda tölvupóst á sil@sil.is.