Aðalfundur SÍL 8. mars 2025

Aðalfundur SÍL var haldinn hjá Lúðrasveit Hafnarfjarðar laugardaginn 8. mars 2025 kl. 16:00.

Fundarsókn

Mætt:
Páll Pálsson (Lúðrasveit Verkalýðsins)
Brynjar Óskarsson (Lúðrasveit Hafnarfjarðar)
Hans Straumland (Brassband Reykjavíkur)
Gréta Hauksdóttir (Brassband Reykjavíkur)
Ólafur Snorrason (Lúðrasveit Vestmannaeyja)
Hlín Ólafsdóttir (Lúðrasveit Mosfellsbæjar)
Kristín Ómarsdóttir (Lúðrasveit Mosfellsbæjar)
Rannveig Rós Ólafsdóttir (Lúðrasveit Verkalýðsins)
Brynja Dögg Jónsdóttir (Lúðrasveit Verkalýðsins)
Sóley Þrastardóttir (Lúðrasveit Fljótsdalshéraðs)

Fundarstjórn

Páll Pálsson var fundarstjóri og Hans Straumland fundarritari.
Fundur var settur kl. 16:04.
Fundurinn var úrskurðaður löglega boðaður.

Skýrsla stjórnar

Skýrsla stjórnar var lögð fram og samþykkt.

Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð síðasta fundar var lesin upp og samþykkt.

Reikningar

Ólafur Snorrason fór yfir reikninga SÍL og dótturfélagsins SÍLH.
Reikningar voru samþykktir með fyrirvara um skoðun skoðunarmanna.

Lagabreytingar

Engar tillögur bárust um lagabreytingar.

Árgjald

Árgjald SÍL er kr. 25.000.

Kosningar

Páll Pálsson gaf kost á sér áfram sem formaður og var samþykktur.
Ólafur Snorrason var endurkjörinn.
Hans Straumland var endurkjörinn.
Brynjar Óskarsson var endurkjörinn.
Þorkell Harðarson var endurkjörinn.

Valgeir Geirsson og Helgi Baldvinsson voru endurkjörnir skoðunarmenn reikninga.

Önnur mál

Lúðrasveit Mosfellsbæjar óskaði eftir inngöngu í SÍL og var það samþykkt.
Sveitin telur um 30 meðlimi og æfir í Varmárskóla.

Rætt var um húsnæðismál lúðrasveita. Margar sveitir eru með aðstöðu hjá skólahljómsveitum eða tónlistarskólum. Lúðrasveit Reykjavíkur og Lúðrasveit Verkalýðsins eru þær einu sem eru í eigin húsnæði.

Páll Pálsson kynnti viðræður við Össur um endurútgáfu Leikandi Létt 1. Össur á útsetningarnar og hefur áhuga á að yfirfara efnið og gefa út rafrænt. Fundurinn veitti stjórn umboð til að vinna áfram að málinu.

Rætt var um möguleika á styrkjum til útsetninga fyrir lúðrasveitir. SÍL leggur áherslu á að styðja tónlist sem hentar lúðrasveitum, helst án söngvara, og að útsetningar verði aðgengilegar öllum lúðrasveitum landsins. Dreifing fari fram eftir frumflutning viðkomandi sveitar. Útsetjari heldur eignarhaldi á verki. Stjórn var falið að móta nánara verklag og senda upplýsingar til sveita.

Rætt var um nótnaskrá SÍL og þörf fyrir rafrænan gagnagrunn yfir íslensk verk. Ákveðið var að safna uppfærðum listum frá sveitum og gera efni aðgengilegt á Google Workspace fyrir tengiliði. Einnig verði reynt að finna eldri rafrænar útsetningar.

Minnt var á mikilvægi þess að senda út upplýsingar um Landsmót tímanlega. Nefnd lofaði að bæta upplýsingaflæði.

Fundi slitið kl. 17:08.